Umhverfisstefna

Papco leggur áherslu á að vera fyrirmynd í umhverfismálum og samþættir sjálfbærni í alla starfsemi sína. Fyrirtækið vinnur markvisst að umbótum, fylgir gildandi lögum og leggur ríka áherslu á að bjóða umhverfisvottaðar og ábyrgari vörur.

Markmið

  • Að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og samfélagið með ákvarðanatöku sinni og þjónustu.
  • Starfa samkvæmt þeim reglum og lögum sem gilda um umhverfismál og umhverfisvernd á Íslandi.
  • Að bjóða uppá fjölbreytt vöruúrval með vottuðum umhverfismerkjum og vörur sem eru síður skaðlegar fyrir umhverfið.
  • Taka tillit til umhverfissjónarmiða við innkaup og flutninga á vörum.
  • Taka virkan þátt í flokkun og endurvinnslu úrgangs og lágmarka úrgang og matarsóun.
  • Reyna eftir fremsta megni að notar eingöngu umhverfisvænan pappír.
  • Efla umhverfisvitund starfsmanna og hvetja þá virkra þátttöku í umhverfismálum.
  • Að mæta þörfum viðskiptavinarins í umhverfismálum og auðvelda þeim að velja umhverfisvænni vörur.
  • Upplýsa og fræða viðskiptavini um hvernig lágmarka megi áhrif hreinlætisvara á umhverfið.